Botinnn:
100g kókosmjöl
100g möndlur
30g lífrænt kakóduft
250g döðlur, lagðar í bleyti í 10 mín
nokkur himalaya salt korn
Millilag.
Millilag.
2 bananar í þunnum sneiðum
Fylling:
3 dl kasjúhnetur lagðar í bleyti í 2 klst
1 ½ dl agavesýróp
3/4 dl kaldpressuð lífræn kókosolía
3-4 msk lífrænt kakóduft
1 tsk vanilluduft/dropar
smá himalayasalt
Botninn:
Allt sett í matvinnsluvélina, látið vélina ganga þar til döðlurnar hafa blandast vel inn í kókosmjölið og möndlurnar og allt klístrast saman. Þjappið deiginu í form, hægt er að nota eitt stór hringlaga form eða mörg muffinform, t.d. silkikonform.
Millilag:
Raðið bönununum oná botninn. Sett inn í frysti á meðan fyllingin er búin til.
Fylling:
Blandið saman hnetum, agavesýrópi og kókosolíu (látið heitt vatn renna á kókosolíukrukkuna svo hún verði fljótandi eða látið hana standa í skál með um 45°C heitu vatni í smá stund) þar til það er orðið silkimjúkt. Bætið þá restinni af uppskriftinni útí og blandið mjög vel saman. Hellið fyllingunni í botninn/botnana og látið inn í frysti.
Vanillu ís
150 gr hvítt möndlusmjör (eða þykk möndlumjólk)
200 gr cashew hnetur
600 ml vatn
¼ b acaci hunang eða meira
½ tsksalt ¼ tsk vanillu duft
Blandið öllu saman í vítamix nema cashew hnetum, setjið þær síðast út í.Kælið blönduna í ½ t til 1 klst og setjið síðan í ísvéleða setjið í frysti og hrærið í á klukkutíma fresti þar til blandan er orðin frosin
Súkkulaði flögur í ísinn ½ b.hrátt kakó½ b. agave nectar½ b. kókóssmjör (brætt við lágan hita)
Blandið agave og kókóssmjöri saman í vitamix og setjið síðan kakó út í.
Hellið í form eða á lok af whole earthbound salati, þunnt lag. Ef þið hafið hitað kókósfituna of mikið þá verður súkkulaðið seigt og ekki hægt að brjóta eins og venjulega súkkulaði plötu. Setjið í frystir.
Möndlumjólk
1/2 bolli möndlur sem legið hafa í bleyti í 8 kl.
2 bollar vatn
sett í matvinsluvél eða blandara og maukað saman, ef okkur finst ekki gott að hafa kornin í er hægt að sýja þau frá og nota í kökugerð
Síðan setur maður í þetta það sem mann lagngar í af ávöxtum, ég set gjarnan, 1 banana og eina sneið af ananas útí og 3-4 döðlur sem legið hafa í bleyti.Það er hægt að nota sesamfræ í sömu hlutföllum en þá þarf að sýja hratið frá, sesammjólk er mjög kalkrík.
Grænn drykkur
1 lúka af spínati eða grænkáli eða hvaða grænu grænmeti sem þú átt
1 epli
safi úr 1/2 sítrónu
1 bolli vatn
Allt sett í blandara og blandað saman, ofsalega holt og gott.
Ath má setja meira vatn ef þú vilt.
Uppáhalds kakan mín
Botninn
4 döðlur
4 apríkósur
4 gráfíkur
lagt í bleiti í 2- 3 tíma
1 mat. kokosolía
1bolli möndlu eða hnetur, ég nota gjarnan hratið úr möndlumjólkini ef ég á það.
allt sett í blandara og maukað.
Súkkulaðið
1 bolli kókosolía
1 bolli kakó
1/2 bolli agave síróp
Bræða kókosolíuna til hálfs í vatnsbaði
þeyta saman kókosolíu og kakó bæta síðan sírópinu útí og blanda vel
Ég set gjarnan banana í sneiðum ofaná botnin og helli súkkulaðinu yfir og nota lífrænar vörur ef ég get.
Þetta er voða holt og gott
Avocado & limekaka
Botn:
1 ½ bolli kókosmjöl
1 ½ bolli furuhnetur/möndlur eða fræblöndu með.
½ tsk salt
½ bolli döðlur sem hafa legið í bleyti í korter
Pínu cayenne pipar
Aðferð: Setjið allt nema döðlurnar í matvinnsluvél og vinnið vel saman. Bæti ðsíðan döðlunum saman við.
Þjappið inn í kökumót
Fylling:
2 avocado, vel þroskuð
¾ bolli agave nektar
¼ bolli limesafi (eða sítrónu)
Aðferð: Setjið allt í matvinnsluvél og maukið samanþar til silkimjúkt.
Hellt yfir botninn og skreytt með t.d. kiwisneiðum
Sollusúkkulaði múslíkúlur
2 dl. kakó
2 dl fljótandi kókosolía
1 dl agave
3 - 5 dl múslí (lífrænt)
Ef vill þá eitthvað af eftirfarandi:
1 dl rúsínur
1 dl kókosflögur
1 dl helsihnetur
1 dl gojiber
Aðferð:
1. blandið olíu, agave og kakó saman í stórri glerskál. Ef þið viljið er gott að setja nokkra dropa af piparmyntu út í á meðan þetta er í fljótanid formi.
2. Bætið múslíinu út í, magnið fer eftir því hvað þið viljið hafa ríkjandi bragð, múslí eða súkkulaði.
3. Setjið restina af bragðaukanum út í.
4. Setjið í form og kælið eða frystið. Þetta þarf alltaf að geyma í kæli eða frosti!
þessi uppskrift er allverg hrikalega góð þegar mann langar í eitthvað gott og sætt
Hóstasaft
1/2 bolli Blóðberg (þurrkað og klippt niður)
ef þú átt þurrkuð fræ af Hvönn er ekki verra að hafa það með
5 Negulnaglar, eða ég setti 1 tsk. af neguldufti
1 st Kanilstöng
1 tsk. rifinn Engifer
2 bollar vatn
þetta er soðið við vægan hita í 20 - 30 mín
Síðan sía hratið frá
1 bolli af góðu Hunangi sett saman við vatnið meðan það er heitt
Sett í krukku og tekið inn eftir þörfum
Búin að prófa þetta á heimilisfólkinu og það hefur haft mjög góð áhrif